Nauðsynlegt að fara með hundinn í skoðun hjá dýralækni ef einkenni gera vart við sig. Hómópatískar remedíur geta verið mjög gagnlegar til að meðhöndla þetta ástand, sérstaklega ef um krónískt eða langvarandi ástand er að ræða.
Aðaleinkenni Bráðanýrnabólga:
Hundur greinilega veikur. Aukinn þorsti, oft uppköst og stundum einnig niðurgangur, lystarleysi og hundurinn getur líka fengið hita.. það getur verið skjálfti í dýrinu og verkir í baki, stirðir í göngulagi, slaga jafnvel og deyfð yfir þeim. Vilja gjarnan vera í friði. Ofþornun fylgir í kjölfarið sem valdið getur til blóðeitruna og leiðir til dauða ef ekki meðhöndlað strax.
Krónísk nýrnabólga:
Þetta kemur helst fyrir gamla hunda og gerist mjög hægt og án þess að tekið sé eftir því. Oft eru smávægilegir verkir eða óþægindi. Þó er aukinn þorsti, sem veldur þvagmissi í mörgum tilfellum, breytt matarlyst, þyngdartap/megurð, uppköst og meltingartruflanir. Sterk þvaglykt verður einnig áberandi.
Exem og hárlos þegar líður á sjúkdómsástandið. Að lokum á sér stað ofþornun í líkamanum og skjálfti verður áberandi þegar nýrun fara að skemmast. Úrgangur sem venjulega skilst út með þvagi verður eftir í líkamanum og veldur ástandi sem kallað er nýrnabilun..... sem leiðir til dauða.
Hvað veldur?
Nýrnabólga er bólga í nýrnavef og getur stafað af sýkingum, áföllum (slysum, eitrunum t.d.) eða jafnvel bara öldrun.
Nýrnabólga er algengari í hræ-ætum og hundum sem borða kjöt en þeim sem eru á grænmetisfæði.
Remedíur sem eru góðar fyrir nýrnasjúkdóma:
Mercurius Solubilis, Apis, Cantharis og Berberis.
Hafið samband við Hómópata til að fá nánari upplýsingar.